Ég gleðst yfir kirkjunni minni
Pétur Björgvin @ 08.14 30/1/12
Vel má vera að ég ætti að velta vöngum yfir þeim sem hafa horfið úr þjóðkirkjunni síðustu 110 ár. 10% þjóðar hvarf á síðustu öld. 10% þjóðar hvarf á síðasta áratug. En svo uppgötvaði ég að þrátt fyrir það, þá elska ég þessa þjóðkirkju enn jafn heitt. Og því ákvað ég að tjá henni ást mína og hrópa svo allir heyri: YES, þjóðkirkja.